
Hver og einn fær 1/2 sítrónu til að ýra yfir réttinn, allt
eftir smekk hvers og eins.
|
Þessi pastaréttur hefur oft reddað mér fyrir horn
þegar ég á von á gestum og þarf að gera eitthvað mjög fljótlegt
en tilkomumikið. Ef þið skerið, saxið og steytið innihaldið
fyrirfram er þessi réttur nákvæmlega 14 mín í eldun eftir að
gestirnir eru komnir. Þetta er svo borið fram með góðu salati og
brauði og ef maður vill vera flottur á því er upplagt að bera
fram Earl
Gray pot de creme á eftir, því sá eftirréttur er
þeim göldrum gæddur að hægt er að gera hann allt að 3
dögum áður.
Innihald :
2 msk smjör
2 msk ólífuolía
2 msk kraminn hvítlaukur
1 tsk þurkað basil
1 1/2 tsk steytt fennel fræ
500 gr hörpuskel, skorin í tvennt ef hún er stór
450 gr gott spagetti helst "tricolore" eða þrílitt
(þeir sem vilja gera sitt eigið skoðið
þetta)
2/3 bolli nýrifinn parmesan ostur
2/3 bolli hvítvín
2 sítrónur
2 msk truffluolía
3-4 msk ferskt basil, rifið
salt og pipar
matreiðsluleiðbeiningar:
Byrjið á að koma upp suðu á miklu vatni og elda spagetti
samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Bræðið smjörið með olíunni
yfir miðlungshita. Setjið hvítlauk, basil og fennel útí og
steikið í 1 mín. hvítlaukurinn á ekki að dökkna. Bætið
skelfiskinum saman við og steikið í 2-4 mín eftir stærð. Hellið
hvítvíninu yfir og sjóðið í 1 mín. Hellið vatninu af pastanu og
dreifið trufflu olíunni yfir. Hellið innihaldi pönnunnar yfir
það líka ásamt parmesan ostinum og blandið vel. Saltið og piprið
e. smekk. Sett á stórt fat og rifnu basil stráð yfir.
Sítrónurnar skornar í tvennt og komið fyrir á fatinu innan um
spagettíið . Berið fram extra parmesan með svo hver og einn geti
bætt út hjá sér.
Til að gera þennan matseðil matarmeiri er upplagt
að bera fram fyllt egg með Mímósum á undan matnum.
Tengt efni:
•
Fyllt egg
•
Mímósa
•
Pasta gerð
•
Earl Gray pots de créme
|