
Heit og seðjandi gúllassúpa hefur alveg sérstakt aðdráttarafl
þegar maður kemur kaldur úr gönguferðum
|
Súpur eru alltaf vinsælar en þessa hér er tilvalið
að gera heima áður en farið er í bústaðinn að vetri til. Eins og
títt er með góðar súpur batnar hún bara við geymslu og upphitun.
Þegar í sumarhúsið er komið er upplagt að fara í langan göngutúr
og koma svo til baka og hita upp súpuna, baka forbakað brauð með
og fá svo almennilegan hita í kroppinn. Tilhugsunin ein yljar
mér......
Innihald :
1/2-1 Kg nautagúllas
2 laukar
100 gr sveppir
1 stór gulrót
1 L nautaskjötssoð af teningi
1 stór rauð paprika
1 lítil dós tómatpúrra
1 dós saxaðir tómatar
2-3 hvítlauksrif
1 msk mejram
1 tsk Kúmen
3 msk balsamic edik
1 msk paprikuduft (helst smoked paprika)
1 msk sykur
salt og pipar
1/2 L mjólk
1 peli rjómi
Sýrður rjómi til að bera fram
með súpunni.
matreiðsluleiðbeiningar:
Brúnið kjötið í litlum skömmtum í olíu í stórum potti.
Setjið til hliðar og lækkið hitann á pottinum. Steikið laukinn
þar til hann verður glær, bætið sveppum, papriku, gulrótum og
hvítlauk saman við og brúnið. Setjið kjötið aftur í pottinn og
hellið kjötsoðinu yfir ásamt tómapúrru og tómötum í dós. Kryddið
og sjóðið í tvo tíma. Þynnið með mjólkinni og rjómanum og sjóðið
aftur í 10 mín. Borið fram með sýrðum rjóma og brauðbollum.
Tengt efni:
•
Kjúklingasalat með melónu og valhnetum
•
Harira
•
Pylsu- og beikonbaka með osti
|