
Mjög fallegt á borði og óvenjulegt að nýta skinkuna sem bolla
undir eggin
|
340
gr kastaníusveppir
1 dós villisveppir
smjör til steikingar
1/4 bolli skalottlaukur, smátt saxaður
2 msk. sýrður rjómi
1 msk. ferskt rósmarín, smátt saxað
1 msk. steinselja, smátt söxuð
12 hringlagasneiðar af skinku
12 ungaegg
kryddjurtir að eigin vali til skreytingar,
smátt saxaðar
Matreiðsluleiðbeiningar:
Hitið ofninn í 200°C. Saxið sveppina smátt. Bræðið smjör á
pönnu og steikið sveppi og skalottlauk við háan hita þar til allur
vökvi gufaður upp. Takið af hitanum. Hrærið saman við sýrðan
rjóma, rósmarín og steinselju. Penslið múffuform fyrir með olíu.
(Best er að nota álform sérstaklega ætlað fyrir 12 múffur) Raðið
skinkusneiðunum í formið þannig að þær verði eins og bollar og
endarnir nái upp fyrir barmana. Deilið sveppamaukinu jafnt ofan í
skinkubollana. Brjótið eitt egg yfir hvern þeirra. Bakið í miðjum
ofni þar til eggin eru tilbúin eða í u.þ.b. 15 mín. Gjarnan má
bragðbæta eggin með salti og pipar. Takið skinkubollana úr forminu
með tveimur skeiðum eða litlum spaða. Berið strax fram.
|