beikon- og pylsubaka m. osti
                                               f. 8-10

Gott að útbúa þetta degi áður og geyma í ísskáp og baka svo áður en það á að bera réttinn fram

 

 

 

 

 

8 sneiðar franskbrauð, skorið í teninga
450 g kokkteilpylsur, brúnaðar á pönnu
1 bréf beikon, skorið smátt og brúnað á pönnu
1 1/2 bolli cheddar-ostur
10 stór egg
2 bollar nýmjólk
4 tsk. dijon-sinnep
1 tsk. salt
pipar eftir smekk

Matreiðsluleiðbeiningar:
Byrjið á að pensla stórt eldfast mót með smjöri eða olíu. Raðið brauðteningunum í mótið. Setjið pylsurnar og beikonið ofan á brauðið og loks ostinn. Pískið eggin lítillega. Bætið mjólkinni, dijon-sinnepi og salti saman við eggin og hrærið vel. Bragðbætið með pipar. Hellið jafnt yfir brauðið, pylsurnar og beikonið. Hitið ofninn í 180°C. Bakið bökuna í u.þ.b. 50 mínútur eða þar til osturinn hefur fengið gullinbrúnan lit.

 

 

 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872