haframjölskökur með rúsínum

Góðar krakkakökur sem falla í góðan jarðveg hjá þeim yngstu

 

 

 

 

 

3/4 bolli mjúkt smjör
3/4 bolli sykur
3/4 bolli dökkur púðursykur
2 stk egg
1 tsk vanilludropar
1 1/4 bolli hveiti
1 tsk matarsódi
3/4 tsk kanill
1/2 tsk salt
2 3/4 bollar haframjöl
1 bolli rúsínur

Matreiðsluleiðbeiningar:
Hitið ofninn í 190°. Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur.  Bætið í eggjum og vanillidroppum og hrærið vel. Blandið hveiti, matarsóda, kanill og salti saman við. Haframjöl og rúsínur sett í síðast.  Setjið á bökunarpappír með teskeið.  Bakið í ca. 10 mín. Kælið.  Gerir 48 stk.

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872