kryddbrauð a la langamma

Kryddbrauð er tilvalið sem skólanesti til tilbreytingar

 

 

 

 

 

innihald:
3 dl hveiti
2 tsk natron
4 tsk kakó
1 tsk kanill
1 tsk  engifer
1 tsk allrahanda
1 tsk múskat
3 dl haframjöl
3 dl púðursykur
3 dl súrmjólk
2 egg

Matreiðsluleiðbeiningar:
Þurrefnunum hrært vel saman, bleytt í með súrmjólk og eggjum og rétt blandað saman með sleif. Ef hrært er of mikið verður brauðið seigt. Bakað við 175 í 45- 50 mín. Dugar í tvö aflöng braggaform eða eitt aflangt jólakökuform
 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872