Earl Grey pots de créme

Borið fram með rjómaslettu og skúkkulaðibaun til skrauts.

 

 

 

 

 

1 bolli rjómi
1 bolli nýmjólk
2 msk Earl Grey te
4 stórar eggjarauður
1/2 bolli sykur
1/2 tsk fínt saxað sítrónuhýði
salt á hnífsoddi

Forhitið ofninn í 172 C. Hitið rjóma, mjólk og te hægt að suðu, takið af hitanum og látið standa í 30 mín eða allt upp undir tvo tíma.

Þeytið saman sykur, eggjarauður, salt og sítrónuhýði, hitið rjómablönduna aftur og hellið henni hægt út í eggjaþeytinginn um leið og þið þeytið vel. Síið te laufin frá í gegnum fíngert sigti án þess að pressa á þau. Setjið 6 eldfastar skálar eða bolla í ofnskúffu og hellið sjóðandi vatni í skúffuna þar til það nær upp á miðjar skálarnar. Jafnið blöndunni á milli skálanna, hyljið með álpappír og gerið lítil göt á hann til þess að gufan eigi undankomuleið. Bakið í 30 mín, kælið. Setjið filmu á bollana og kælið í ísskáp í 2-3 tíma. Má gera með 3 daga fyrirvara.

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872