
Gott að bera þessa súpu fram með sítrónubátum og pide brauði.
|
Eigi alls
fyrir löngu vann ég á litlum vinnustað með um 12 manns í vinnu og
það leið ekki á löngu þar til að ég uppgötvaði hversu frábær
tilraunadýr þessi hópur gæti verið. Þar sem ég get verið frekar
hvatvís (þeir góðhjörtuðu segja drífandi) sannfærði ég eigandann
um ágæti hugmyndarinnar svo að segja um leið og mér datt þetta í
hug og hófst svo handa. Ég skuldbatt mig til þess að elda súpu
handa mannskapnum á hverjum mánudegi í þágu góðs vinnuanda og
almennrar samheldni og hann skuldbatt sig til þess að borga
brúsann. Planið var að fara með þennan 12 manna hóp í
matarferðalag hringinn í kringum jörðina, nánar tiltekið að skokka
þetta á 80 súpum. Ég man ennþá hvar ferðalagið hófst en get alls
ekki fullyrt hvar það endaði eða hvernig ferðalagið fór fram því
að ég zikk-zakkaði þetta fram og til baka á mjög svo óformlegan og
óvísindalega hátt. Við byrjuðum sem sagt á Íslandi og fengum
ákaflega þjóðlega kjötsúpu í fyrsta túrnum, komum við í
Frakklandi, Senegal, Kúbu, Austurríki, Thailandi, Mexíkó og
Marokkó. Viðkomustaðirnir voru orðnir mikið fleiri þó að ég
muni þá ekki alla en því miður hætti ég störfum hjá fyrirtækinu
áður en að því kom að við gætum klárað heimsreisuna. Það ferðalag
sem þó var farið kom okkur oft á óvart, yljaði, fræddi og gladdi
en síðast en ekki síst kynnti okkur fyrir ótrúlega fjölbreyttri
matamenningu. Svartbaunasúpa, chili-bananasúpa, möndlusúpa og
graskerssúpa. Þykkar, þunnar, heitar og kaldar, matarmiklar eða
glærar, sterkar eða bragðdaufar; súpur spanna svo sannarlega allar
víddir bragðlaukanna. Hér er ein af mínum uppáhalds súpum,
marokkóska súpan HARIRA, sem borðuð er eftir sólsetur á 4 vikna
föstunni Ramadan.
harira
innihald:
100 g kjúklingabaunir
500 g lamba gúllas
2 msk ólívuolía
1 stór laukur (um 200 g) grófsaxaður
2 tsk engifer
1 msk cummin
1 tsk kanil
3 tsk kóríander
6 saffron þræðir
250 g sellerý grófsaxað
2 dósir niðursoðnir tómatar
2,5 l vatn
100 g linsubaunir (brúnar)
1/4 bolli ferskt kóríander
matreiðsluleiðbeiningar:
Leggðu kjúklingabaunirnar í bleyti yfir nótt.
hitaðu olíuna í stórum potti og steiktu laukinn yfir
meðalhita þar til hann er glærum 2 mín., settu allt kryddið
útí og steiktu í aðrar tvær mín. Bættu gúllasinu og
sellerýinu saman við og brúnaðu það. Síðan fara tómatarnir,
kjúklingabaunirnar og vatnið í pottinn og soðið í 1,5 klst, hrært
í af og til. Að lokum eru linsurnar settar saman við og soðið í
30mín. Stráið fersku kóríander yfir áður en að súpan er borin
fram.
Gott með ristuðu pide brauði |