
|
Botn
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
4 stk egg
2 dl sykur
1 dl hveiti
Matreiðsluleiðbeiningar:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið
saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og
sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út
í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lausbotna /
nota 26 cm springform) við 160°C í 30 mínútur.
Berjasósa
1/2 bolli rifsberjahlaup
1 bolli skógarberjablanda eða önnur ber (notaði frosin)
2 tsk kartöflumjöl
7 msk sykur
Hitið rifsberjahlaup, berjablöndu og sykur við vægan hita þangað
til suðan kemur upp. Takið af hitanum og þykkið með karftöflumjöli.
Ég notaði ekki nema hluta af sykrinum, best að smakka þetta til.
Kælið í 1 klst.
Hvítsúkkulaði rjómi
200 gr. gott hvítt súkkulaði (t.d. Toblerone)
1 1/3 bolli rjómi
Þeytið rjómann og bætið söxuðu súkkulaðinu saman við.
|