heitt hvítt súkkulaði

svolítið öðruvísi og meiriháttar gott

 

 

 

 

 

Innihald:
4 bollar mjólk
4 bollar matreiðslurjómi
500 gr hvítt súkkulaði, saxað
2 tsk vanilludropar


matreiðsluleiðbeiningar:
 

Hitið mjólkina og rjómann við meðalhita. Rétt áður en að blandan nær suðu, takið af hitanum og bætið súkkulaðinu saman við. Þegar það hefur nær því bráðnað, setjið vanilludropana útí og þeytið mjög vel. Hitið aftur við vægan hita og berið fram.

Handa 8-10 manns.


 
tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872