kókosmuffins með kremi

Kókoskökurnar krúttlegu !

 

 

 

 

 

Innihald:
350 g smjör
2 bollar sykur
5 stór egg við stofuhita
1 1/2 tsk vanillu dropar
1 1/2 tsk möndludropar
3 bollar hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk natron
1/2 tsk salt
1 bolli súrmjólk
450 g kókosmjöl (helst sweetened, shredded coconut ef þið getið fengið það)
Rjómaostakrem


matreiðsluleiðbeiningar:
Forhitið ofninn í 160 C. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst og bætið einu eggi við í einu og hrærið vel á milli. Setjið dropana útí og blandið vel. Sigtið þurrefnin saman og bætið þeim útí í tveimur hollum til skiptis við súrmjólkina. Ekki hræra of mikið.Blandið að síðustu 210 g af kókosmjölinu saman við. Setjið í muffinsform og fyllið þau nánast upp. Bakið 25-35 mín. Kælið. Smyrjið kreminu á, dýfið þeim svo í restina af kókosmjölinu til skrauts.

Gerir um 24 stk.

krem
450 g rjómaostur
140 g smjör
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk möndludropar
450 g flórsykur

Hrærið  rjómaost, dropa og smjör saman þar til kekkjalaust. Blandið flórsykrinum saman við og hrærið vel.


 
tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872