
Þetta er svolítið þungt salat og því gæti verið góð hugmynd að
setja iceberg salat með á sneiðarnar
|
Innihald :
200 g létt-majones
6 egg
200 g beikon steikt
1 tsk Dijon sinnep
matreiðsluleiðbeiningar:
Hrærið saman majonesi og sinnep og bætið í þetta stökku
beikoni í bitum og söxuðum eggjum.
Smurt á samlokur, skorpan skorin af og samlokan
svo skorin í þríhyrning. Ef vill má smyrja örlitlu af majonesi á
langhliðina og þrýsta síðan þeirri hlið ofan í sesamfræ.
|