Botnar
240 g smjör
3 bollar hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
1 3/4 bollar sykur
1 1/2 tsk vanilludropar
4 msk blá birkifræ
1 msk fínrifið sítrónuhýði
1 bolli mjólk
8 stórar eggjahvítur, við stofuhita
cream of tartar á hnífsoddi
1/2 l rjómi, þeyttur
sítrónukrem (uppskrift fylgir)
Matreiðsluleiðbeiningar:
Hitið ofninn í 170 C. Smyrjið tvö 26 cm lausbotna form. Hrærið
saman sykur og smjör þar til létt og ljóst og bætið við
sítrónuhýði, birkifræi og vanilludropum. Sigtið saman þurrefnin og
setjið þurrefnablönduna og mjólkina svo til skiptis útí í tveimur
hollum. Hrærið ekki mjög mikið á milli. Þeytið eggjahvíturnar með
cream of tartar þangað til stífar og blandið þeim svo varlega
saman við deigið. Skiptið í tvö form og bakið í c.a. 40 mín.
Sítrónukrem
8 eggjarauður
fínrifinn sítrónubörkur af 2 sítrónum
safi af 3 sítrónum (um.þ.b. 1,5 dl)
2 dl sykur
3 msk smjör
Setjið öll hráefnin í pott yfir lágum hita og hrærið stöðugt
þangað til kremið er orðið nógu þykkt til þess að þekja bakið á
skeið eða eftir um 8 mín suðu. Kælið vel. kakan sett saman
Blandið saman sítrónukreminu og þeytta rjómanum. Skerið
toppinn af neðri botninum til þess að jafna hann og setjið á fat.
Leggið botnana saman með hluta af kreminu og smyrjið afganginum á
hliðar og ofan á kökuna, skreytt með birkifræi eða öðru
kökuskrauti.
|