bangsabrauð

Bangsinn var bæði hollur og góður

 

 

 

 

 

Í barnaafmælum er hefðbundið að boðið sé uppá súkkulaðiköku skreytta með sælgæti eða fagurlega skreyttar kökur í líki teiknimyndapersóna, leikfanga eða einhverju álíka. Þegar Lillý Karen dóttir  mín var eins árs var hún ekki farin að smakka  sælgæti og því datt mér í hug að nota bangsaform til þess að baka brauð í og leggja á milli eitthvað verulega gott álegg. Möguleikarnir þar eru nánast endalausir þannig að það er um að gera nota bara það sem manni sjálfum eða barninu finnst gott. Ég notaði uppskrift sem nægði í eitt venjulegt formbrauð og það smellpassaði í bangsaformið. Til þess að einhver lita- eða áferðarmunur sæist, stráði ég birkifræjum í nefið, augun, hendur og fætur þegar ég var búin að smyrja formið. Aðalatriðið er að smyrja vel svo að bangsinn náist heill úr forminu.  Þegar áleggið hefur verið sett á og “samlokan” tilbúin er gott að stinga nokkrum plast- eða trépinnum í gegnum hana á nokkrum stöðum svo auðveldara sé að skera brauðið án þess að áleggið fari út um allt.

  Þetta sló í gegn hjá bæði börnum og fullorðnum

franskbrauð
 ( hægt að nota hvaða brauðuppskrift sem er)

750 gr hveiti
5  dl volgt vatn
1 msk salt
20 gr pressuger

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872