|
|
Hver
kannast ekki við það að undir tölvunni, við sjónvarpsskápinn eða
annars staðar þar sem mikið af raftækjum er safnað saman, er
undantekningarlaust mikil snúruflækja. Það er svo alveg eftir
happa-glappa aðferðinni sem maður nær sér í snúru og prófar að
taka úr sambandi ef þess gerist þörf. Geymið plaststykkið sem
notað er til að loka brauðpokunum og smeygið því uppá snúrurnar
við fjöltengið eða þar sem þeim er stungið í samband. Merkið með
sýrutússi eða notið límmiða sem þið límið á plastið. Með þessari
aðferð þurfið þið ekki framar að velkjast í vafa um hvað sé hvað
þegar snúrurnar eru annars vegar. tengt efni:
•
Að slétta borðdúk án straujárns
•
Að hreinsa mottur
•
Að geyma rúmföt
•
Að fjarlægja bletti af viðarhúsgögnum
|