að velja rúmfatnað

Hvítt á rúminu er alltaf sígilt

 

 

 

 

 

Góður nætursvefn er undirstaða vellíðunar almennt eins og allir vita og ekki úr vegi að dekra aðeins við sig þegar kemur að rúmum, rúmfatnaði og sængum. Við eyðum jú um 1/3 ævinnar í rúminu. Kaupið það besta sem þið hafið efni á þá stundina, það ætti að borga sig þegar fram í sækir, fyrir utan þá vellíðunartilfinningu sem það veitir nótt eftir nótt. Eitt það besta sem ég veit er að skríða upp í rúm með nýstraujuðum rúmfötum og nýviðruðum sængurfötum. Lúxus sem maður ætti að veita sér sem oftast og kostar ekki krónu !

Það er margt sem þarf að hafa í huga þegar maður velur sér rúmfatnað, sérstaklega ef ætlunin er að kaupa eitthvað sem á að endast. Til að sniðganga allar tískusveiflur en samt hafa eitthvað smart  á rúminu er sniðugt að kaupa hvít eða mjög ljós rúmföt og þá er hægt að bæta við auka koddaverum og jafnvel lökum í þeim tískulitum og mynstrum sem gilda hverju sinni og nota þau með.

En bómull er ekki það sama og bómull og til þess að eiga möguleika á að skilja á milli gæðaefnis og þess ódýra skulið þið leita eftir því hversu hátt "thread count" er í efninu. Þetta þýðir einfaldlega að þræðirnir í hverjum fersentimetra eru taldir og því fleiri þræðir sem  er pr. fersentimetra efnis, því slitsterkara og mýkra er það. Oftast eru notaðar enskar mælieiningar;  þræðir pr. Inch eru taldir frekar en sentimetrarnir en hafið í huga að allt yfir 200 pr. inch er talið gott. Því hærra, því betra hvað þetta varðar. Ef umbúðirnar segja svo til um að þetta sé "combed cotton" er það ávísun á mýkt.

meðhöndlun:

  • Ávallt skal þvo rúmfatnað áður en hann er notaður í fyrsta skipti, til að ná steiningunni úr. Í sumum tilfellum þarf að þvo rúmfatnaðinn í fyrsta skipti yfir ákveðnu hitastigi til þess að festa litinn en þetta á þá bara við um sterka liti. Skoðið vel umbúðirnar áður en þið þvoið ný rúmföt og fylgið leiðbeiningunum.
     
  • Forðist að nota klór þar sem hann veikir þræðina í efninu og eykur slit.
     
  • Gott er að nota fljótandi þvottaefni á dökkan rúmfatnað þar sem duftið á það til a
     
  • Það á helst ekki að þvo rúmföt með handklæðum þar sem handklæðin auka líkur á að rúmfötin hnökri.
     
  • Það er léttara að strauja ef rúmfötunum er stungið í þurrkarann nokkra stund og svo tekin beint út og straujuð áður en þau þorna til fulls.
     
  • Útsaumur og blúnda skal ávallt straujað á röngunni með tvíbrotið handklæði undir, það kemur í veg fyrir að útsaumurinn klessist niður.

 

Hér ætla ég að fara aðeins yfir mismunandi tegundir rúmfatnaðar.

bómull: Mjúk bómullin er hefðbundið efni í sængurföt, vill krumpast mikið en andar vel. Til í mismunandi vefnaði, allt frá sléttofinni bómull yfir í bómullarsatín og damask sem er dýrara.

bómullar og pólýesterblanda: Kosturinn við þessa blöndu er að hún krumpast ekki eins og hrein bómull en hún er ekki eins mjúk viðkomu. Á móti kemur að þetta efni andar ekki og á það til að hnökra leiðinlega.

jersey: Þetta er prjónað bómullarefni og það sama og notað er í T-Boli. Kosturinn við það er mýktin og það krumpast ekki en á það til að aflagast og verða skrýtið í laginu. Einnig vilja ódýrari gerðir jersey efnisins hnökra.

flannel: Þetta bómullarefni hefur ekki mikið verið notað í rúmföt hérlendis nema þá helst fyrir ungabörn en það er mjög hlýtt. Gallinn við flannelið er að það á það til að hlaupa mikið, leitið af "pre-shrunk" rúmfötum en það þýðir að búið sé að þvo þau og taka í reikninginn hversu mikið efnið hleypur.

lín: Slitsterkt með afbrigðum en dýrt. Ef þið fjárfestið í líni ætti það að duga fyrir komandi kynslóð. Gallinn er sá að það þarf ávallt að strauja það og einnig getur það verið hart viðkomu meðan það nýtt en það mýkist með aukinni notkun.

silki: Dýrt efni sem hentar vel í rúmföt vegna einangrunareiginleika sinna. Er gott hvort sem er í miklum kulda eða miklum hita. Stór mínus er hinsvegar að flest rúmföt úr silki þurfa þurrhreinsun.

 

 

 

 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862 2872
<