að meðhöndla marmara

 

 

 

 

 

Marmari er vissulega fallegt gólfefni en þarf ákveðna meðhöndlun til að njóta sín sem best. Besta ráðið er að þrífa marmarann oft og reglulega og þá bara með vatni og mjúkum klút. Hreinsiefni og yfirborðsskítur geta nefnilega rispað yfirborðið og flýtt fyrir skemmdum. Annað slagið þarf þó að nota sápu eða annað hreinsiefni á gólfið. Sérstök hreinsiefni fyrir marmaragólf eru til hjá seljendum flísa en annars má nota lítilræði af uppþvottalegi eða grænsápu. Þurrkið yfir gólfið með þurru tusku þegar þið hafið lokið við að skúra uppúr sápu. Einnig þarf að bóna gólfið reglulega en hversu oft fer í raun og veru eftir því álagi sem gólfið er undir.

tengt efni:

Að slétta borðdúk án straujárns
Að hreinsa mottur
Að geyma rúmföt
Að fjarlægja bletti af viðarhúsgögnum
 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872