að geyma rúmföt

Ekkert mál að halda öllu í röð og reglu ef að þessum ráðum er fylgt eftir.


Stingið ilmbréfi með í hilluna til að fá allt til að ilma vel.

 

 

 

 

Áður en að ég uppgötvaði þetta ráð var alltaf allt á tjá og tundri í línskápnum hjá mér, sama hvað ég reyndi að ganga vel um og skipuleggja hann vel. Um leið og maður þurfti að nálgast eitthvað ákveðið, sem var þá náttúrulega neðst í bunkanum, (samkvæmt lögmáli Murphys) fór allt úr skorðum. Fyrir utan þá dauðaleit sem  ég þurfti oftast að framkvæma til að finna allt sem við átti í eitt sett. Vera má að þetta sé erfiðara á mínu heimili en öðrum þar sem við erum koddasjúk; það þarf tvo til þrjá kodda á mann, mismunandi stóra, mjúka og fyllta, til að við getum látið okkur líða vel. En þetta þjóðráð ætti hinsvegar að duga öllum.

  •  Bunkið saman það sem þarf á eitt rúm: lak, eitt til tvö sængurver og 2-6 koddaver.
     
  • Hafið bunkann í hæfilegri stærð svo að hægt sé að troða öllu heila klabbinu inn í eitt koddaverið.
     
  • Þá eruð þið komin með mjög svo meðfærilegan bunka, allt á einum stað og auðvelt að kippa honum undan öðrum bunkum á hillunni.
     
  • Til að auðvelda geymslu á aukasængum og þynnri sumarsængum, er gott að setja þær í "þvottapoka" ú neti sem ætlaðar eru peysuþvotti. Umfangið minnkar og þær verða þægilegri í geymslu.

     
tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872