
Mjög gott ráð fyrir "ekta" mottur en dugar því miður takmarkað á
gerfiefni þar sem það er svo rafmagnað
|
Besta ráðið til að djúphreinsa mottur án þess að splæsa á þær
hreinsun eða teppahreinsivél er að fara með þær út í frosti þegar
snjór er nýfallinn. Þá er snjórinn ennþá hreinn og nægilega þurr.
- Dustið motturnar eins og venjulega eða ryksugið
áður en þið farið með þær út.
- Snúið þeim á hvolf ofan á snjóinn og gangið létt yfir þær
til þess að snjórinn þrýstist vel inn í vefnaðinn.
- Látið liggja í smá stund og bankið svo allan snjóinn í burtu
með teppabankara eða tennisspaða. Snjórinn tekur með sér
óhreinindi sem legið hafa djúpt inn í mottunni, án þess að
bleyta hana.
|