myndir hengdar upp með borða

Hér er borðinn hafður í sama lit og myndin

Hér er borðinn notaður til þess að sameina nokkrar litlar myndir

Hér er borðinn hafður blár til þess að kallast á við rammann

Hér er ramminn, myndin og veggurinn í sama tón

Borðar notaðir til að sameina nokkrar litlar myndir á stöng

Hér eru borðarnir og rammarnir hafðir ósamstæðir en myndirnar og stærð rammana mynda heild

 

 

 

 

Sú aðferð að nota borða til þess að hengja upp myndir hefur aftur verið að ryðja sér rúms og eru útgáfurnar óendanlegar. Hafa verður í huga að velja borðann þannig að hann sé í stíl við annað hvort vegginn sem hann á að fara á, myndina sjálfa eða þá rammann. Hér til hliðar notaði ég t.d. gulann borða sem endurspeglaði gula litinn í myndinni og svo aftur gula litinn á veggjunum (sem ekki sést). Til þess að kóróna þetta límdi ég fallega tölu með límbyssu á naglann þegar ég hafði rekið hann í vegginn. Á neðri myndinni saumaði ég töluna við borðann sjálfann og útbjó lykkju aftan á slaufuna til þess að hengja borðann upp. Endilega prófið aðrar útfærslur eftir ykkar höfði.


 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872