
Hvernig áhrif hefur dagsbirtan á liti ?
|
Í nútíma
arkitektúr er nánast alltaf gert ráð fyrir opnum íbúðum þar sem
rýmin renna saman og milliveggir eru sem fæstir. Þegar svona
háttar til þarf að gefa því sérstakan gaum hver áhrif alls þessa
ljóss, sem flæðir óhindrað um íbúðina, eru. Birtan og
árstíðaskiptin spila stærri rullu í þessum tilfellum heldur en við
hið hefðbundna lokaða skipulag sem tíðkaðist áður fyrr. Við búum
við kalda norræna birtu sem er af skornum skammti meiri hluta
ársins en aðra mánuði ársins er svo offramboð ef svo má að orði
komast. Stórt rými baðað kaldri birtu og málað í köldum tóni í
ofanálag er ekki hlýleg vistarvera að vetri til en getur verið
mjög þægilegt að sumri til. Þarna þarf að reyna að fara bil beggja. T.d. getur vistarvera sem snýr í vestur með tilheyrandi hlýrri
sólsetursbirtu virst mjög notaleg að kvöldi til en það getur verið
allt annað uppi á teningnum að morgni til. Besta ráðið til að átta
sig á breytileika litarins sem þú hefur valið er að mála stóra
prufu á vegginn og skoða hana svo í öllu mögulegu ljósi við allar
aðstæður til að fullvissa sig um að manni þykir "nærvera"
litarins ávalt góð.
|