leiðir til að stílisera heimilið

Miðað við þann fjölda leiða sem hægt er að fara í innanhúshönnun hef ég oft velt fyrir mér hvers vegna íslensk heimili eru svona einsleit. Hér koma bara nokkur dæmi:

Japanskur stíll

Kínverskur stíll

Indverskur stíll

Norrænn stíll

Sænskur sveitastíll

Marokkóskur stíll

Grískur stíll

Franskur Antík stíll

Franskur sveitastíll

Karabískur stíll

Ítalskur sveitastíll

Ítalskur modern stíll

Ítalskur Memphis stíll

Art nouveau

Art Deco

Arts and crafts

50´ áratuguinn

60´áratugurinn

70´áratugurinn

Funkis

Bauhaus

Rómantískur stíll

Amerískur Kántrý stíll

Mexíkanskur stíll

New York Loft stíll

Spænskur stíll

og svona mætti lengi telja.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  • Fyrir alla muni taktu þér tíma til þess að uppgötva þinn persónulega stíl og reyndu að gera greinarmun á því sem hrífur þig af því að það er í tísku og svo aftur því sem þú átt eftir að vera hrifin af um ókomna tíð.
     
  • Byrjaðu á því að festa / ákveða hver fókusinn er í rýminu, það getur verið arinn, gluggi, stórt málverk, rúm eða innrétting sem ekki verður færð.
     
  • Skrifaðu niður hvaða stíl þú sækist eftir og þá á ég ekki við stutt og laggott ; Kántrý. Heldur ; Franskur sveitastíll með köflóttum efnum, vírnetshurðum í innréttingum, gyllt og svart ásamt bláu í litaskema og  hvít-máluðum húsgögnum. Vertu eins nákvæm/ur og þú getur og það gerir eftirleikinn mun auðveldari.
     
  • Veldu fyrst eitthvað eitt sem yrði þá útgangspunktur fyrir það sem koma skal. Þetta getur verið motta, gluggatjöld, púðar eða skrautmunur. Viðkomandi hlutur ætti að endurspegla þinn karakter og lífstíl. Útfrá honum velur þú svo litaskema, stíl og það andrúmsloft sem þú sækist eftir.
     
  • Þegar útgangpunkturinn hefur verið fundinn og ákveðinn stíll valinn skal hefjast handa við að velja stóra og áberandi hluti inn í herbergið eins og t.d. sófa, borðstofuborð, rúm eða þvíumlíkt.
     
  • Áður en hafist er handa við að mála skal ávallt ákveða hvaða gólfefni eiga að vera á rýminu og hvort taka þurfi tillit til áklæðis eða gluggatjalda sem fyrir eru.
     
  • Það kemur best út að blanda saman mynstrum og litatónum til þess að halda fjölbreytninni. Þetta gerir það að verkum að að rýmin virka aldrei óspennandi að horfa á. Það er hægt að blanda saman rósóttu, röndóttu og köflóttu eða t.d. stór mynstrað með smá mynstruðu. Sömu áhrifum er hægt að ná með mismunandi áferðum. Fínflauel á móti grófri hör, leður með silki o.s.fr.
     
  • Þegar hugað er að staðsetningu húsgagna skal alltaf taka tillit til aðgengis og gangvega og passa að loka aldrei hluti eða innréttingar af.
     
  • Ákveddu hlutverk rýmisins og gættu þess að velja hluti og húsgögn sem hæfa því hlutverki. Ef að t.d. borðstofan þín er líka vinnuherbergi er ekki gáfulegt að velja þangað inn viðkvæmt antíkborð sem rispast auðveldlega.
     
  • Forðast skal að blanda saman mörgum viðartegundum.
     
  • Endurtekning er lykilatriði; ein rauð skál á borði getur virkað eins og að hún sé þar alveg óvart en ef þú bætir við rauðum kertum, púða með rauðu mynstri og pottablómi sem blómstrar rauðu verður strax ljóst að rautt er hluti af því litaskema sem þú hefur valið þér.
     
  • Lýsingin skiptir miklu máli og fyrst er að huga að hlutverki rýmisins, ákveða hvar þurfi vinnulýsingu, hvar hún þurfi einungis að vera "kósý" og hvar þurfi að lýsa upp sérstaka hluti eða hluta.
     
  • Nýttu þér andstæður á jákvæðan hátt. T.d. njóta dökk húsgögn sín betur á ljósum grunni og svo öfugt.
     
  • Skapaðu flæði og tengingar á milli herbergja og hæða með því að nota sömu litatóna, efni og stíl og endurtaktu sama stef með ólíkum áherslum.
     
  • Veldu aukahluti sem styrkja þá ímynd sem þú sækist eftir; ef þú hefur valið þér grískan stíl er tilvalið að hafa gardínurnar í Toga stíl og kaupa sér nokkra gríska vasa.
     
  • Paraðu saman hluti til að undirstrika jafnvægi og samræmi.
     
  • Notaðu oddatölur (3,5,7) þegar þú velur saman hluti á borð eða í hillur. Þegar valdir eru saman hlutir sem eru mismunandi háir skal setja þá saman innan ímyndaðs þríhyrnings.
     
  • Dragðu athyglina að því sem er sérstakt eða fallegt í rýminu en reyndu að fela það óhagstæða. Oft er lausnin falin í því að breyta neikvæðum hlutum í jákvæða.
     
  • Nýttu þér línur til þess að undirstrika rýmið og villa augað. Láréttar línur lengja, lóðréttar línur skapa hæð og skálínur stækka.
     
  • Klipptu út myndir og efnisprufur og komdu fyrir á einu blaði svo að þú náir að sjá heildarmyndina og hvort að það sem þú hefur í huga virki saman.


Eins og sést er að mörgu að hyggja þegar innrétta skal heimilið á fallegan og persónulegan hátt. Ef að þér finnst þetta flókið mál eða veist hreinlega ekki hvar þú átt að byrja er ráðlegt að hafa samband við stílista til þess að koma þér af stað. Oft kemur ókunnugur með sniðugar lausnir sem þér hefði ekki dottið í hug og ósjaldan hef ég sparað fólki töluverðar fjárhæðir með ráðleggingum mínum.

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862 2872
<