
Gott dæmi um amerískt kántrý

Hér er franskt kántrý allsráðandi

Nýlendustíllinn eða Colonial Country

Þetta er eitthvað sem við þekkjum vel; skandinavískt kántrý

Shaker stíllinn er mjög látlaus og einfaldur
|
Sveitastíll var mjög í tísku á Íslandi eigi alls fyrir löngu en
hefur verið á útleið að undanförnu. Það er í raun miður því að
mörgu leiti hentaði hann okkur Íslendingum vel. Þessi staðreynd
leiðir mig enn og aftur að uppáhalds umræðuefninu mínu en
það er hversu íslensk heimili eru einsleit og oft á tíðum
karakterlaus. Eina stundina er country "inni" og þá er það alls
staðar en aðra stundina er það "úti" og þá sér maður það hvergi.
Kántrý stíllin endurspeglar aðra og einfaldari lífshætti en við
eigum að venjast og það er hluti sjarmans sem yfir honum er.
Tilfinning er er kósý og rómantísk en ekki síður full af nostalgíu
og einhvern veginn á maður frekar von á könnu af heitu kakói og
rólegu spjalli í svona umhverfi en því minimalíska.
megin stefnur
En kántrý er ekki bara kántrý. Innan þessa stílramma
rúmast svo margt. Megin stefnurnar eru þó Amerískt kántrý, franskt
kántrý, shaker stíllinn, skandinavískt kántrý og nýlendustíllinn.
Síðan tíðkast líka grauta öllum þessum kántrý stílum saman í
einhverja óútskýranlega sveitarómantík.
megin fókus
Húsgögnin eru sterkbyggð og án alls óþarfa, renndir fætur eða
gróft yfirborð einkennir þau. Notast er við náttúruleg efni, opnar
hillur, körfur og box.
megin áferðir
Breið og frekar gróf eikar og furuborð eru alls ráðandi efnisval
hvort sem um er að ræða húsgögn eða gólfefni. Viðurinn er oft olíu
eða vaxborinn en annars hvíttaður eða málaður með blómamynstri.
Mikið er um skraut og stensla á veggjum en þeir eru líka oft
klæddir með furuborðum eða eikarlistum. Loftbitar eru áberandi og
oft á tíðum skreyttir mynstri. Notast er við messing kopar og
málað tin í aukahlutum og búsáhöldum en einnig var leirinn
algengur.
megin efni
Handofin og heimagerð efni eru eðli sínu samkvæmt frekar gróf og
einföld að gerð. Ofið var úr ull, hör og bómull og algengustu
mynstrin voru köflótt, einfaldar rendur, blómamynstur, stílfærðar
mannamyndir og einstaka dýr. (sænski hesturinn og franski
haninn svo dæmi séu tekin)
megin litir
Þau litarefni sem hægt var að nálgast við bæjardyrnar eru þau efni
sem notuð voru og því eru allir litirnir mjög mjúkir og dempaðir;
jarðlitir, ryðrauðir og muskugrænir. Undantekningar frá
þessu eru þó sterk gulu og skær bláu litirnir sem finnast í
franska og skandinavíska kántrý stílnum.
megin fylgihlutir
bútasaumur, heklaðar mottur, körfur, mjólkurkönnur, handgerðir
trémunir, fjölskyldurmyndir, leir og keramik hlutir, naive
málverk, kerti og tré box ýmiskonar.
tengt efni:
•
Leiðir til að stílisera heimilið
•
Áhrif ljóss á liti
•
Karakter í litum - grænn
•
Að hengja upp myndir
|