|
Góð hugmynd til að nota í barnaherbergi er að kaupa grunnar
hillur eða jafnvel diskarekka og koma fyrir við rúm barnanna.
Þar er svo hægt að raða bókunum þannig að kápan snúi fram og
börnin hafa þá góða yfirsýn yfir bækurnar sínar.
Þetta gefur herbergjunum líka lit og lífgar upp á
heildarmyndina. Bækurnar eru aðgengilegar fyrir börnin hvenær
sem er ef þið tryggið að hillurnar séu festar þeirri hæð sem
þeim passar eða hafið eins og í mínu tilfelli hér, bekk undir
hillunum sem þau geta notað til að klifra uppá og nálgast
bækurnar þannig.
Áður en börnin urðu það stór að þau höfðu áhuga á bókum komu
sömu hillur sér vel sem skógeymsla undir litla skó og þeir
sömuleiðis skreyttu herbergið heilmikið og gáfu því bæði líf og
lit.
Þessar litlu hillur sem ég notaði fást í IKEA en einnig er
tilvalið að kaupa nýjan eða notaðan diskarekka, mála í fallegum
lit og hengja upp.
tengt efni:
•
Myndir hengdar upp með borðum
•
Áhrif ljóss á liti
•
Leiðir til að stílisera heimilið
•
Að hengja upp myndir
|