skreytt fyrir fermingarveislu
Þessi skreyting er ætluð á hlaðborð fyrir fermingardreng. Ég ímyndaði mér að viðkomandi væri áhugamaður um golf svo hægt væri að tengja áhugamál fermingarbarnsins skreytingunni.  Blái liturinn kemur svo á móti þessum hvíta og auðvitað er grænt í blómaskreytingunni sjálfri. Það mætti vel hugsa sér litla fótbolta eða aðra mini bolta í stað golfkúlunnar í þessari skreytingu en boltar eru þó ekki nauðsynlegir, hvað sem er rúmast í vasanum og ofan á kúluna er hægt að setja fleiri blóm í stað bolta.

 

 

 

 


Oasis kúla er lögð í bleyti og þakin með heimilisfriði sem klipptur hefur verið niður. Hann er síðan festur niður með lykkjum úr vír. Í þessu tilfelli notaði ég silkiblóm (ranunculus eða slíðrasóley) en það má nota rósir, nellikkur, túlípana eða bara það sem ykkur finnst fallegast. Stilkarnir eru klipptir stuttir og þeim stungið í oasis kúluna. Tyllt með vír ef þurfa þykir. Svo klippti ég nokkra stilka af hengiblómi sem ég átti (og verð að viðurkenna að ég þekki ekki nafnið á) svona til að kóróna skreytinguna.

 

 


Fermingarkertið þarf ekki endilega að vera merkt með aðkeyptri áletrun, það er hægt að fara svo margar aðrar skemmtilegar leiðir í þeim efnum (sjá tengt efni hér að neðan). En hér prentaði ég út úr tölvunni nafn og dagsetningu á tiltölulega stífan pappír, útlitið var í stíl við boðskortið og litirnir pössuðu þemalitunum. Þetta er svo klippt niður í hæfilega stærð og fest saman að aftan með skrautpinnum eða títuprjónum með fallegum haus.

 

 

 

 

 

 

 

 

Boðskortið var einfalt en fallegt. Það er prentað út á stífan pappír og svo hringskorið. Það eru til sérstakir skerar/skæri sem skera út í hring, í föndurbúðum, og gera þeir verkið mun fljótlegra og áferðina jafna og fallega. Það eina sem skreytti kortið var upphleypt mynd af golfkúlu sem var límd á pappírinn. Umslagið er geisladiskahulstur sem var merkt nafni og heimilis-fangi boðsgesta á bakhlið.

 


Merkingin á servíetturnar er svolítið óvenjuleg, hægt er að panta stensil á netinu (t.d. http://www.livingvictorian.com) þar kallast þetta embossers og hægt að velja úr myndum og upphafsstöfum. Síðan er hægt að merkja hvað sem er með þessu þegar fermingin er yfirstaðin eins og t.d. bækur fermingarbarnsins og margt fleira.

 

 

Þó að túrkisblái liturinn sé í aðalhlutverki er fallegra að nota fleiri tóna af bláu með ásamt andstæðunum í hvítu og grænu. Annars er hætt við að allt virki svolítið mónótónískt. Verið óhrædd við að blanda saman litum til að lífga uppá heildarmyndina.

 

 

Það eru ekki bara borðin sem henta vel til skreytinga, reynið að finna út aðrar lausnir eða aðra staði eins og t.d. hér þar sem lengja af efni er hengd fyrir framan súlu og síðan skreytt í kring og fyrir framan lengjuna. Þetta gefur meiri "fyllingu" í salinn og gerir hann persónulegri en ella.

 

 

 

 

 

 

 

 

Efniviðurinn þarf ekki að vera flókinn né dýr, hér blandast saman grófur vír í einni flækju, fjörugrjót og kerti í barnamats-krukkum ásamt litlum glervösum. Vasarnir  voru fylltir með bláu vatni og einu silkiblómi stungið í.

 

 

 

 

 

 

Hér er svo að sjá lengjuna í heild sinni, í senn ódýrt en áhrifamikið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Önnur hugmynd af skreytingu á hlaðborðið fyrir þá sem ekki treysta sér í einfalda skreytingu eins og hér að ofan. Í þessu tilfelli eru notaðar stórar greinar af silkiblómum sem stungið er í vasa sem fylltir hafa verið að lituðu vatni og sellófani. Við hlið þeirra er krukka, einnig með lituðu vatni og sellófani, sem í hefur verið stungið nokkrum litlum vösum með hvítum silkiblómum. Vasarnir eru samskonar og notaðir voru á vegglengjurnar nema í þessu tilfelli var blómunum stungið í þá með knúppinn á undan.

 

"Vasarnir" fljóta fallega ofan á lituðu vatninu og séllófanið gefur meiri dýpt og glans. Lituðum bláum vír var vafið utanum mjórri endann og nokkrar bláar perlur fengu að sökkva til botns.

 

tengt efni:

• Skreytt fyrir brúðkaup
Sparileg kertaskreyting
Páskaskreytingar
Fermingarhlaðborð skreytt
Gátlisti fyrir ferminguna
Matur fyrir marga

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872