skreytt fyrir brúðkaup

Varast skal að ofhlaða buffet borðið, maturinn er skrautlegur og þarf sitt pláss. Fallegast er að nota fáa en stóra og áberandi hluti. Hér eru notaðir rúmlega meters háir kertastjakar og ein stór blómaskreyting á upphækkun. Glær sería vefst um borðið á milli matarskálana og laufblaða.

 

Aðalborðskreytingunni var komið fyrir í stórri skál á fæti og hún höfð frekar frjálsleg til að vega upp á móti sparilegum rósunum, laufblöð, ber og annað fallegt úr nálægum görðum nýtt sem uppfyllingarefni og látið falla frjálslega niður með hliðum skálarinnar.

 

 

Gestum var gefinn kostur á að skrifa falleg skilaboð og heilræði um hjónabandið til brúðhjónanna. Miðinn var síðan brotinn saman og honum stungið í fallegan vasa sem var merktur í tilefni dagsins. Gullpennar, fallegir miðar og kerti kórónuðu borðið sem og rósalengja með var títuð á dúkinn.

 

 



Vegna þess hve áberandi litur var á gardínum og teppi í salnum var reynt að halda öðrum litum í mjúkum og hlutlausum tónum til að heildarmyndin yrði sem best. Gylltur, kremaður, ljós gulgrænn og hvítur voru litir kvöldsins.

 

Á borðunum voru breiðir kremaðir renningar með gylltum bryddingum. Á þá voru settar litlar rósa skreytingar, kerti í  glösum ofan á ljósgræn laufblöð og perlum stráð á milli. Einnig var bók með ýmsum upplýsingum dreift meðal gesta til minningar um brúðkaupið.

 

Tjulli var vafið utan um stólbökin og kremuð slaufa notuð til að binda það saman. Skreytingarnar voru settar eins glös og kertin og nafnamerkingar gestanna voru prentaðar á renninga sem síðan var rúllað upp eins og hjarta og stungið í glösin.

 

Þess var vel gætt að allar skreytingar harmóneruðu saman, hvort sem var í ræðupúlti, buffetborði, pakkaborði, kökuborði, bar, borðinu með gestabókinni, borðinu með heilræðunum og matarborð gestanna. Síðan má ekki gleyma að skreyta salernin.

 

 

Flott fjölskylda á flottum degi !

Maturinn var mjög góður og það setti punktinn yfir i-ið.

               

 

                                                       

 

 

 

 

 

 

 
tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872