Jólaborð (3)

Ég var alltaf ánægð með hvernig þetta jólaborð heppnaðist enda skreytingin mjög jólaleg, setti áberandi svip á borðið en var ekki plássfrek því ég kom henni fyrir á kökudiski á fæti sem lyfti henni upp frá borðinu og skapaði þannig pláss í kringum hana. Aðal liturinn eru grænir litatónar og þemað frost. Jólaskreyting sem lítið þurfti að hafa fyrir.

Við hvern disk setti ég kerti sem var í laginu eins og  jólatré til að gera stemmninguna enn hlýlegri, það mætti einnig hugsa sér að setja lítinn miða með nafni gestsins upp að trénu og nota það þannig sem borðmerkingu líka. Á þessari mynd sést einnig glitta í gervi snjóflögurnar sem ég stráði yfir borðið. Undirdiskurinn setur líka mikinn svip á borðið og gerir heildarmynd þess mjög sparilega. Gyllta röndin er það breið og áberandi að ég afréð að endurtaka gyllta litinn ekki í neinum öðrum skreytingum til þess að ofgera ekki.

 

Í þetta sinn geymdi ég tauservíetturnar sem mér hafa hingað til þótt ómissandi á jólum og öðrum stór hátíðum og notaði í stað þeirra vandaðar bréfservíettur og braut þær þannig að að þær náðu alla leið að glasinu og undir það. Óhefðbundið brot á annars frekar hefðbundnu jólaborði sem jók á litagleðina með því að brjóta upp hvítan dúkinn.

 

 

 

Eins og áður sagði var þemað frost og ég stráði gervi snjóflögum yfir borðið  og ofan í glösin. Áður en hellt er í glösin er svo tilvalið að leyfa gestunum að sturta "jólasnjónum" yfir alla nærstadda. Flögurnar fara vitanlega út um allt en það er alveg þess virði að ryksuga þær upp miðað við hlátrasköllin sem uppátækið vekur. Jólakransinn á miðju borðinu og greinarnar sem liggja eftir endilöngu borðinu eru einnig alsett snjó.

 

 

Látlaus og falleg dekking og sérstaklega hátíðleg.

 

 

 

Ég keypti þennan krans tilbúinn, en hann lítur út fyrir að hafa verið lengi úti í frosti og snjó. Ég kom honum fyrir á kökudiski á fæti, setti kubbakerti í miðjuna og bætti við nokkrum jólakúlum til þess að fá í hann meiri lit

 

Þegar jólaskreytingin er skoðuð frá hlið sjást vel þessir grænu kristallar sem ég hengdi í kransinn. Þarna glittir líka í fuglana sem ég setti á greinalengjuna sem gengur þvert á borðið.

 

 

Ofan frá sést að stóru skreytingunni fylgdu tvær litlar sitt hvoru megin. Þetta eru litlar konfektskálar á fæti,fullar af gervisnjó og sykurmolum og grænar jólakúlur tróna á toppnum.

 

tengt efni:
Jólaborð (1)
Jólaborð (2)
Sparileg kertaskreyting
Skreytt fyrir brúðkaup

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872
<