"indversk"  kertaglös

Glösin gerði ég í mismunandi útfærslum og reyndi að hafa þau sem skrautlegust.


Servíetturnar voru brotnar eins og Lotusblóm og miðja þeirra fyllt með rósablöðum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eitt sinn stefndi ég saman hópi kvenna til þess að hittast og borða indverskan mat ásamt því að fræðast aðeins um stöðu indverskra kvenna. Við höfðum fengið til okkar indverskan  "kokk" af þessu tilefni sem heitir Shabana og sá hún svo um að fræða okkur um kynsystur sínar í Indlandi yfir borðhaldinu. Mjög skemmtileg kvöldstund sem ég mæli með.

Við þetta tækifæri langaði mig að skapa indverska stemmingu yfir borðhaldinu og reyndi að ná fram þeim áhrifum án þess að fjárfesta í fullt af indversku dóti sem ég myndi svo aldrei nota aftur. Litagleðin er í fyrirrúmi í Indlandi og því voru litir dagsins skær-bleikt og appensínugult með einstaka doppu af kóbalt bláu og safír grænu. Eitt af því sem ég gerði var að fara í Góða Hirðinn og kaupa mér stök glös í svipuðum stærðum og líma svo á þau borða og bryddingar.

þú þarft:
nokkur glös af svipaðri stærð
silkiborða
pallíetturæmur
plast "gimsteina"  og spegladoppu
alhliða túpulím

leiðbeiningar:
Þvoðu glösin vel til að taka af þeim alla hugsanlega fitu til að límið taki sig sem best.

Veldu saman borða, pallíettur og annað skraut, klipptu í réttar lengdir og tylltu lími hér og þar á borðana. Varastu að setja of mikið lím því að þá sést það í gegn og klessist út um allt.

Vefðu borðunum utan um glösin og haltu þeim föstum augnablik á meðan límið er að taka sig.

Límdu "gimsteinana" á og þá eru glösin tilbúin.


tengt efni:

Glycerín gestasápur
Þrívíðir rammar
Uppstillingar
Myndir hengdar upp með borðum
 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872