
Frjálsleg og heimilisleg blómaskreyting

Blómstrandi Hortensía
|
Það er bæði
peningasparnaður og ánægja samfara því að útbúa sjálfur
blómaskreytingarnar í brúðkaupið sitt og mjög sjarmerandi og
persónulegt ef að blómin koma úr þínum eigin garði. Eða þá
foreldra eða tengdaforeldra ef þannig stendur á. Það er flott að
blanda saman rósum úr blómabúð og öðrum minna formlegum tegundum,
best er að láta litina á garðablómunum sem þú hefur til
ráðstöfunar ráða valinu. Gerðu nokkrar prufu skreytingar áður en
að þú ákveður þig með form, liti og fjölda tegunda. Gott er að
klára skreytingarnar daginn áður og geyma þær á köldum stað
yfir nóttina.
þú þarft að hafa:
Litla kúlulaga glervasa
Afskornar rósir úr blómabúð
Blómstrandi Hortensía í potti
Úrval blóma og laufa úr garðinum
leiðbeiningar:
Klippið stilkana stutta á blómunum og skáskerið rósirnar. Stingið
laufblöðum, stráum, greinum eða öðru því sem nota á til
uppfyllingar, fyrst í vasann og setjið svo blómin í eitt af öðru
þar til þið eruð orðin ánægð með heildarmyndina. Það kemur
fallegast út að stakka saman 3-5 blómum sömu gerðar ( fer eftir
stærð) svo að skreytingin líti ekki út fyrir að vera doppótt.
tengt efni:
• Skreytt
fyrir brúðkaup
•
Að velja ljósmyndara f. brúðkaup
•
Sparileg kertaskreyting
•
Páskaskreytingar
•
Fermingarhlaðborð skreytt
|