Boðskortið prýddi mynd af fótum afmælisbarnsins nýfæddu, á kortinu stóð:
Nú er liðið eitt ár frá því að þessar tásur
litu dagsins ljós og af því tilefni býður hún
Stella Maren til veislu, Ef þið sjáið ykkur
ekki fært  að koma og sjá hversu mikið
tásurnar hafa stækkað, vinsamlegast
 látið okkur vita í tíma.


Borði með Bangsimon myndum
er límdur með kennaratyggjói
á kökustand á fæti.

 

 
Til að ná fram alvöru afmælisstemningu
 verður að hafa blöðrur !


 
Aðalafmæliskakan með einu kerti í
 miðjunni og marsipan fígúrum.

 

 
Muffins í móti  smurðar rjómaostakremi
og svo dýft í kókosmjöl. Að lokum skreytt
með fána með nafni afmælisbarnsins
og sætum bangsamyndum.



 
Bangsímon borðinn var notaður til
þess að skreyta dúkinn, kökudiskana
 og blöðrurnar.




Ostabakki og samlokur hafðar með til
þess að vega upp á móti öllum kökunum. Myndasýning af afmælisbarninu gekk
 stöðugt á tölvuskjánum.

 


Bangsímon hattarnir fengu 2 hlutverk;
fyrst voru þeir fylltir af poppi og svo
prýddu þeir lítil höfuð.
 


Nammibarirnir eru góð uppspretta
sælgætis í öllum regnbogans litum;
hér valdi ég nammið með tilliti til
 litaþemans í afmælinu.

 


Heitt hvítt súkkulaði er mikill unaðsdrykkur á köldum vetrardegi sem þessum, fyrir þá sem ekki voru nógu ævintýragjarnir til þess að fást til þess að smakka það, var ég með heitt kókó með marshmallows.
       

 

barnaafmæli f. 45

Krílið mitt hún Stella Maren (alias Crouci d´ou la) varð eins árs um daginn og af því tilefni var að sjálfsögðu haldin herjarinnar veisla. Mikið rosalega er gaman að skipuleggja barnaafmæli; maður getur virkilega tapað sér í allskonar krúttlegum smáatriðum og pastel litum og skreytingum með tilheyrandi tuskudýrum. Ég ákvað að hafa hefðbundna kökuveislu að þessu sinni því að einhverra hluta vegna býð ég sjaldan upp á svoleiðis herlegheit og vel yfirleitt aðrar leiðir. Það var sem sagt kominn tími á almennilega kökuveislu með öllu. Það var von á allri fjölskyldunni og því miðast allar tölur við 45 manna veislu en að sjálfsögðu er hægt að sníða það á alla kanta.


 

matseðill

kökuhlaðborð

poppyseed kaka með sítrónukremi

samloka með kjúklingasalati

samloka með egg og beikonsalati

kókosmuffins með kremi

súkkulaði, sulta og frostungur

skyrterta m. kiwi

skúffukaka afmælisbarnsins

marengsterta með súkkulaðirúsínum og salthnetum

ostabakki með kexi og
perucider jelly

Poppkorn og sælgæti

drykkir

heitt hvítt súkkulaði

kakó með marshmallows


minnisatriði


Viku áður: sendu út boðskortin,  keyptu servíettur og annað þematengt, gott er að vera búin að ganga frá gjöf afmælisbarnsins svo að það verði ekki stress á síðustu stundu.
4 dögum áður: Verslaðu inn það sem þolir geymslu. Byrjaðu að baka marengsinn. Muffins er hægt að baka og setja í frysti, sömuleiðis botnana.
2 dögum áður: Útbúðu skyrtertuna og það sem eftir var af öðrum botnum.
Daginn áður: Gerðu salötin og geymdu í kæli. Allar kökurnar þola það að vera settar saman daginn áður og geta því verið tilbúnar. Leggðu dúkana á borðin og sléttaðu þá samkvæmt húsráði.
Samdægurs: Skreyttu kökurnar, leggðu á borð og undirbúðu drykkina. Það þarf að skreyta borðið, blása í  blöðrur og setja sælgæti í skálar. Smurðu samlokurnar og taktu ostana úr ískápnum að minnsta kosti 2 tímum áður en að veislan hefst.

 

mynstur og margbreytileiki
Ég fékk rosalega sætar gamaldags bangsímon servíettur í Partýbúðinni, þar keypti ég líka bangsímon borðann og hattana. Þegar svona teiknimynda-þema er valið skal varast að ofgera því ekki, fáir hlutir gera meira heldur en ef allt er eins, diskar, glös, dúkur osfrv. Þá nýtur þetta sín ekki og hafa ber í huga að minna er meira í þessu tilfelli. Ég átti ljósgrænan dúk sem var fallegur við og svo var nammið í Bangsímon litunum, grænt, gult og hvítt. Kökurnar voru það líka sem og drykkirnir.


möguleikar
• Til að flýta fyrir má kaupa marengsinn og svampbotninn tilbúinn. Einnig væri hægt að nýta sér þjónustu osta og smjörsölunnar og kaupa tilbúna ostatertu í stað skyrtertunnar.

Annar möguleiki í stöðunni er að fá vinkonu eða ættingja til þess að létta undir með þér og baka eina eða tvær kökur. Mamma fékk t.d. það verkefni að búa til skyrtertuna enda er hún snillingur í þeim.

 

minningar
Það háttar þannig til hjá mér að ég legg hlaðborðið yfirleitt á vinnuborð í bókherbergi / skrifstofu sem ég hef aðstöðu í inn af stofunni. Það þýðir að ég sit uppi með tölvuskjáinn á vinnuborðinu því að það er svo mikið mál að taka hann niður. Ég hef tíðkað að breyta þessum stóra mínus í stóran plús með því að búa til myndaseríur sem passa tilefninu, í þessu tilfelli  fyrsta ár barnsins í hnotskurn, og svo læt ég seríuna rúlla stöðugt á meðan að gestirnir stoppa. Reyndar er skjárinn flatur þannig að auðveldara er að koma þessu við.

 

mússík
Við þessi tækifæri þýðir lítið að velta sér mikið upp úr mússíkvali því að eftir sem gestum og ég tala nú ekki um börnum, fjölgar, verður hávaðinn meiri. Til að byrja með hafði ég nýju íslensku vísnaplötuna  á geislanum og lét hana bara ganga  til enda. Svo hreyfði ég ekki við tónlistinni meira þannig daginn.

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872